28.4.2007 | 13:11
Meðaltal alsælu og vansælu = skratti gott
Okkur er sagt að kaupmáttur hafi aukist um 56% að meðaltali síðastliðin 9 ár. Nú ætla ég ekki að efast um að þetta sé rétt hjá stjórnarliðinu, en það er afskaplega hæpið að einblína á meðaltöl. Dæmi: Þú setur aðra hendina í 60°C bakarofn og hina í -20°C frystihólf, að meðaltali ætti þér að líða skrambi vel í 40°C hita (60+20=80:2=40°C). Þú veist betur því innan 5 mínútna verður þú búin að taka báðar hendurnar úr þessum skilyrðum því þú heldur þetta ekki út, þér líður mun betur þegar skilyrðin eru jöfn.
Nákvæmlega sama gildir um kaupmáttinn. Þó kaupmáttur hafi aukist um 56% að meðaltali, þá hefur hann aukist um 30% hjá þeim verst settu í þjóðfélaginu, en 118% hjá þeim best settu. Sjálf er ég örugglega nálægt meðaltalinu, en mér líður samt illa yfir þessari mismunun. Mig langar ekki að lifa í þjóðfélagi, þar sem bilið milli þeirra efnuðu og fátæku eykst og eykst. Ég er ekki á móti því að fólk verði ríkt, get meira að segja samglaðst því. En ég er afskaplega ósátt við að horfa upp á stéttskiptingu verða til á Íslandi. Ég sem var svo stolt þegar ég fór til náms í Þýskalandi 1979 og gat sagt við þjóðverja að á Íslandi væru allir jafnir. Allir höfðu sömu möguleika á menntun og heilbrigðisþjónustu og engin stéttskipting. Núna 25 árum síðar er allt önnur staða í íslensku þjóðfélagi hvað þetta varðar. Að fara til læknis og tannlæknis verður alltaf dýrara og dýrara, hlutur Tryggingastofnunar verður að sama skapi minni og minni. Þeir efnaminni sem oftar en ekki eru sjúkir þurf því að verja stærri hluta af ráðstöfunartekjum sínum til heilbrigðisþjónustu en áður.
Ef við lítum í kringum okkur sjáum við að allt er á fleygi ferð. Úr mörgu andlitinu skín "ég um mig frá mér til mín" Fólk má ekki vera að því að líta í kringum sig og athuga hvernig næsti maður hefur það í raun.
Við verðum að snúa þessu við og byggja aftur upp þjóðfélag sem byggir á samkennd. Samfylkingin er best til þess fallin að koma því í framkvæmd. Kjósum því jöfnuðin í vor.
27.4.2007 | 20:22
Hneyksli í Kastljósi
27.4.2007 | 19:48
Baráttan - Áfram, áfram .......
- Bera virðingu fyrir hinu liðinu, ekki hræddur, enginn er ósigrandi.
- Aldrei rífast innbyrgðis inni á velli, það veikir og hitt liðið eflist til muna.
- Hafa gaman af leiknum, stappa stálinu í samherjana.
- Spila saman, skiptir ekki máli hver skorar.
- Ekki deila við dómarann (fjölmiðla).
- Gefast aldrei upp, leikurinn er búinn þegar flautan gellur, ekki mínútu fyrr.
27.4.2007 | 19:46
Áfram Samfylking
Áfram Ingibjörg Sólrún og þitt góða lið í Samfylkingunni, nú er að spýta í lófana, láta gamminn geysa. Regla númer eitt:
Fylgi Samfylkingar og VG jafnmikið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.2.2007 | 11:50
Jafnréttisfólk - Staðan er 27:0
Frá því íslendingar tóku við stjórn landsins fyrir rúmum 100 árum hafa 27 karlar verið forsætisráðherrar, engin kona (27:0), skoðið þetta yfirlit: http://is.wikipedia.org/wiki/Fors%C3%A6tisr%C3%A1%C3%B0herrar_%C3%A1_%C3%8Dslandi Hvernig í ósköpunum stendur á þessu? Ingibjörg Sólrún var kosinn formaður Samfylkingarinnar vegna greindar sinnar og stjórnunarhæfileika. Hefð er fyrir því á Íslandi að formaður stjórmálaflokks verði forsætisráðherra ef viðkomandi flokkur myndar meirihluta. Kosningarnar í vor snúast m.a. um jafnrétti kynjanna. Viljum við jafnrétti í raun?Ingibjörg Sólrún er eina konan sem getur orðið forsætisráðherra á næstunni, það er staðreynd. Hinar konurnar, sem einnig eru greindar og flottar eru bara ekki fremstar í röðinni, strákarnir eru þar. Kolla Halldórs, Steingrímur fyrir framan. Þorgerður Katrín, Geir fyrir framan. Sif Friðleifs, Jón fyrir framan. Margrét Sverris, já hún yfirgaf rasistana, gott hjá henni.Kjósum eftir hjartanu í vor, höfum þó í huga að misrétti kynjanna viðgengst enn, staðan yrði þá allavega 27:1.
24.2.2007 | 10:05
Fyrsta bloggfærsla
Um bloggið
Sigurborg Daðadóttir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar